Lilypie Baby Ticker

   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Monday, September 11, 2006
Erum komin með nýja síðu!!!!!

Erum hætt með þessa síðu og komin með nýja!!!

Http://konungshjonin.bloggar.is

Endilega tékkið á okkur þar og breytið okkur í tenglum ;)

Við lofum að vera ROSA dugleg að blogga á nýju síðunni!

Blogdrive síðan næst ekki í Kína og þess vegna ákváðum við að nýta tækifærið og búa til nýrri flottari síðu :) Hanna og Ingvar verða nú að geta lesið hvað við erum að bralla hérna á klakanum :)

Bless blogdrive og takk fyrir samfylgdina ;)

Kv.Hildur og Gulli.

 


Posted at 04:04 am by manchester
Make a comment  

Thursday, August 31, 2006
kisulingur

Í tilefni þess að 100.ár eru frá síðustu færslu ætla ég að skrifa hérna oggulítið.

*  Ég hef komist að því að ég á fallegustu börn í heimi.

*  Það er aldrei að vita nema að STÓRVELDIÐ sé að fara upp:)

*  það er aldrei að vita að %&$%$"&%$# sé að fara niður:)

*  Ester Ósk er mikil áhugamanneskja um fótbolta í TV.

*  Signý María er nánast búin að læra að syngja Rabbabara Rúna.

*  Hildur er að fara að fá sér HK-tattoo:)

*  Stelpurnar mínar í 3.fl. eru æfinga óðar.

*  Ég er að fara að bursta opna HK mótið í golfi á laugardag.

*  Tengdapabbi er orðin harður HK-ingur:)

*  Tengdamamma er laumu City stuðningsmaður.

*  Egill og Pála báðu mig um að redda fyrir þau eiginhandar áritunum hjá mfl.HK.

*  Hanna og Ingvar ætla að smakka hund í Kína.

kv.Superman

 

 


Posted at 03:44 pm by manchester
Comments (5)  

Thursday, July 27, 2006
Home alone for the day!

Jæja þá erum við Ester home alone! Gulli fór í morgun til Akureyrar með 2.fl kk að stjórna þeim í leik og þar sem þeir þurftu að fara í rútu kemur hann ekki heim fyrr en mjög seint í kvöld og fór eldsnemma í morgun. En við mæðgurnar kunnum samt alveg að skemmta okkur þannig þetta er í góðu lagi :)

Ég er bara búin að vera að læra í allan dag og er að komast á fínt ról með það núna. Er samt búin að ákveða að taka bara 3 próf og einbeita mér alveg að þeim í staðinn fyrir að strögla með 4.próf. Svo er áfanginn sem ég sleppti frekar tímafrekur þar sem ég hefði þurft að gera 7-8 bls ritgerð fyrir prófið og það hefði ábyggilega tekið flest allan próflestrar tímann af mér! Þannig ég er alveg sátt við þessa ákvörðun og ætla bara að taka hinn áfangann seinna :)

En það eru s.s 3.próf framundan og því meira en nóg að lesa! en ég ætla að massa það eins og annað :)

Ester Ósk er alltaf sama krúttið og maður veit ekki af henni! Algjört draumabarn! Signý María átti að koma um helgina en mamma hennar ákvað að skella sér með hana og stóru systur hennar í sumarbústað þannig við ætlum bara að fá hana einhvern tíman í vikunni í staðinn.

Gulli er að fara í sumarfrí í næstu viku og þangað til skólarnir byrja aftur, en þá fer  hann aftur að vinna í Digranesi :) Ég held bara að honum sé farið að hlakka til að fara aftur þangað, enda finnst honum svo hrikalega gaman að vera í kringum krakka :) Svo er hann að fara að gera spennandi hluti í þjálfuninni í vetur en þar sem það er ekki alveg búið að klára það þá kemur bara meira um það síðar :)

Ég ætla aftur í sálfræðina í haust og hlakka mikið til! núna verður þetta tekið á hörkunni enda engin ólétta til afsökunar núna þegar maður nennir ekki að læra!!! :) hehe!

Ég ætla samt að láta þetta duga í bili! :)

BÆJÓ !

Vill bara bæta því við að  MAGNI ROKKAR FEITT!!! Djöfull erum við hjónin að fíla hann!!! Hann er að gera góða hluti í ROCK STAR SUPERNOVA!!! Algjör snilld!

Ein í lokin af okkur mæðgunum :)

 


Posted at 08:07 pm by manchester
Comments (7)  

Monday, July 24, 2006
Snilldar helgi!! :)

Hæhæ :)

Shitturinn titturinn hvað laugardagurinn var skemmtilegur!!!

Ég byrjaði daginn á að fara með saumóbeibs gellunum mínum til Ingunnar í afmæliskaffi kl.11 um morguninn :) Þar var þvílíkt góður morgunmatur á boðstólnum!! Við vorum þar til að verða 1, en þá fór ég með Ester Ósk til Gulla og skellti mér svo í ratleik með stelpunum um miðbæ Rvk :) Íris var búin að útbúa þennan snilldar ratleik með Ingunni og það var sko geggjað fjör í honum! Við vorum hlaupandi út um allan bæ með myndavél í för og húkkandi far með mis eðlilegu fólki! :) hahaha! Eftir ratleikinn kom Gulli að sækja okkur nokkrar og við skelltum okkur í pottinn hjá Thelmu Dögg :) Ester Ósk kom með okkur en hún svaf bara í vagninum á meðan! Þar var spilaður svarti pétur og stelpurnar fengu sér bjór :) Eftir pottinn var farið heim í glansgallann og svo hist heima hjá Íbba þar sem átti að keyra út í Heiðmörk og grilla saman :) Ég tók að mér að grilla ofan í liðið og gekk það bara helvíti vel! Við sátum þar í þvílíkt góðu veðri og átum á okkur gat. Eftir það fórum við heim að ná í öllaranna okkar og hittumst svo hjá Guðrúnu Hildi í nýju íbúðinni hennar :) Ekkert smá krúttleg íbúð!!! Þar var svo sannarlega drukkið og spjallað, dansað og dottið, hlegið og hlegið enn meira!!! :) hahahaha! Við vorum þar langt fram á nótt en um hálf 4 leytið sagði ég stopp og labbaði heim í hlýjuna til Gulla og Esterar :) Ég kom heim þvílíkt ánægð með daginn og kvöldið! Reyndar fylgdi með stór kúla á hausnum en ég læt það ekkert á mig fá ;)

S.s snilldar dagur og kvöld og eitthvað sem við stelpurnar verðum fljótlega að endurtaka! :)

Í gærkvöldi fengum við svo Herdísi, Jón Andra, Hönnu og Ingvar í heimsókn :) Við spiluðum Pictonary þar sem sumir teiknuðu fallegri myndir en aðrir :) hahaahaha! 

Frábær helgi og við konungshjónin hrikalega ánægð með lífið! :)

svo erum við líka á nýjum bíl!!! Citroen C5, geðveikt flottur!!!

Hann er svona eins og þessi nema bara svartur :)

Jæja ég er out! Bæjó Hildur!


Posted at 07:22 pm by manchester
Comments (4)  

Friday, July 14, 2006
Gulli 31.árs :)

KÓNGURINN Á AFMÆLI Í DAG :) :) KALLINN ER ORÐINN 31.ÁRS GAMALL! HVORKI MEIRA NÉ MINNA! ;)

 

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÁSTIN MÍN!

ÉG ELSKA ÞIG AF ÖLLU HJARTA!!! :*


Posted at 08:53 pm by manchester
Comments (2)  

Saturday, July 08, 2006
GLEÐIDAGUR!!!

Ester Ósk er 3.mánaða í dag!!! :) Húrra, Húrra, HÚRRA!!!!!!!

Sigga og Magga eru 21.árs í dag!!! Til hamingju klikkuðu tvíbbar!!! :) Þið eruð svo miklir snillingar! Bið að heilsa bændunum á Eskifirði ;)

Ég var að komast að því að það kemur 4.sería af OC næsta haust :) :) :) Þvílík gleði sem ríkir í hjarta mínu!!! Ég vona bara að ákveðinn aðili sé á LÍFI!!!! Segi ekki meira svo ég skemmi ekki fyrir þeim sem ekki hafa séð!!!

Gulli og þeir í HK unnu Víking Ólafsvík 0-2 áðan og eru komnir í 3.sæti í deildinni sem er bara frábært hjá þeim :) :)

Magni komst áfram í ROCKSTAR SUPERNOVA!!!! Heavy flott hjá kallinum! :) Hann var ekki einu sinni meðal þriggja neðstu!

S.s nóg að gleðjast yfir þessa stundina!

En ég ætla að fara að baða Ester Ósk og koma henni í háttinn, svo þarf ég að taka okkur til á ættarmótið!

ADIOS!


Posted at 01:27 am by manchester
Comments (2)  

Thursday, July 06, 2006
Stiklað á því helsta!

 Jæja það er sko kominn tími á nýjan pistil :)

Hérna er svona highlights yfir það sem við höfum verið að bralla undanfarið

  • Erum að fara á ættarmót um helgina á Laugarbakka hjá ættinni minni :)
  • Við erum að fara að fá okkur nýjan bíl og segjum ykkur þegar það er komið hvernig bíl :)
  • Gulli er sætastur og Besti kærastinn :)
  • Ester Ósk er alltaf sama krúttið og dafnar þvílíkt vel :)
  • Signý María er alltaf að verða meira og meira fullorðin og er meira að segja búin að læra nr okkar og getur þess vegna hringt sjálf í okkur þegar hún vill :)
  • Ég er búin að vera að missa mig á útsölunum, og búin að gera þvílíkt góð kaup!!!
  • HM er að verða búið og ég er í krísu! Ég er búin að halda með Ítalíu alla keppnina ásamt fleiri liðum ;) Og svo er núna komið í ljós að úrslitaleikurinn verður Frakkland - Ítalía og ef að Frakkar vinna þá fær Gulli 25.000 kall, þannig ég er í andlegri baráttu við sjálfa mig hvort ég eigi að halda með Frökkum eða Ítalíu!!! Þetta verður erfið ákvörðun......!!!
  • Ég er að læra á fullu enda styttist alltaf í prófin sem verða um miðjan ágúst!
  • Þegar Gulli er ekki heima hjá okkur er hann að vinna eða þjálfa enda nóg að gera í þeim efnum!
  • Ég verð að fá að vita hvort þetta sé síðasta sérían af O.C sem er núna í TV, en ég er búin með hana og ÉG FÓR AÐ GRÁTA!!! JÁ ég viðurkenni það fúslega að ég fór að gráta!!!! Ok kannski ekki hágráta, en það láku tár í stríðum straumum!!! :( Sorglegri endi hef ég ekki séð í sjónvarpi síðan Friends ákvað að leggja upp laupana mér til mikilla ama enn þann dag í dag  :(
  • EF ÞIÐ LESENDUR GÓÐIR VITIÐ HVORT ÞETTA SÉ SÍÐASTA SERÍAN, PLÍS LÁTIÐ MIG VITA!!!!!!!!!!!!!!!
  • Rock star supernova er í kvöld og ég er frekar spennt að sjá Magna sýna listir sínar!
  • Stelpunum rignir á landið en núna er Íris bara eftir :) Dísa skvísa lendir í kvöld og Íbbi Brund er væntanleg þann 9.júlí! :) Tvíbbarnir ásamt Thelmu Teina eru lentar og farnar í sveitina!
  • Hlakka ÞVÍLÍKT til næsta saumó!!!!!!!!!!!
  • Ég á tvær nýjar Diesel buxur sem ég er in love with!!!!!!!!

Jæja ég læt þetta duga í bili! Skrifa fljótt aftur mine venner!

BÆJÓ!!


Posted at 12:04 am by manchester
Make a comment  

Saturday, June 10, 2006
HM LOKSINS byrjað!!!

Hæhæ :)

Jæja þá er enn ein helgin komin!! Mér finnst alltaf vera helgar, og er ástæðan kannski sú að allir mínir dagar eru eins eða eins og helgi! Ekki það að það sé verra samt :)

Það er sko meira en nóg að gera hjá okkur konungsfjölskyldunni þessa helgina eins og venjulega! Signý María er hjá okkur og við Signý og Ester Ósk fórum í dag með ömmu Ester í grillpartý í vinnunni hennar, en þar voru hoppukastalar og fleira gaman og Signý hoppaði stanslaust í einn og hálfan tíma :) Ég skil ekki hvernig hún meikaði allt þetta hopp! En hún er soddan orkubolti!!! :) Á meðan við vorum þar var Gulli að þjálfa og svo fór hann heim að horfa á HM, enda ætlar hann ekki að missa af einum leik alla keppnina !! Hann heldur grimmt með Svíum enda keypti hann sér nýjustu Svía treyjuna í gær, en það var sko pínu vesen þar sem hún er ekki seld hérna á Íslandi! En kallinn hringdi bara í alla sem hann þekkir nánast og athugaði hver hefði bestu samböndin í Svíþjóð! Valgerður í mfl.kv,HK/viking reddaði þessu fyrir kallinn sem verður líklegast í eilífri þakkarskuld við hana ;)

En talandi um HM! Það er BARA SNILLD að keppnin skuli LOKSINS vera byrjuð! Ég verð að hafa nóg fyrir stafni í fæðingarorlofinu mínu og gæti ekki hugsað mér betri afþreyingu! :) Bara gaman :)

Gulli er svo að fara að keppa á morgun og ætlum við mæðgurnar að fara að horfa á hann, en leikurinn er við Þrótt kl.4 :) Ég vona bara að það verði gott veður, er ekki að nenna meiri rigningu næsta árið! Langar í sól og sumar og hana nú!!! Ég er bara þannig manneskja að ég hleð orkubatteríin í sól og hana er búið að vanta of lengi núna, þannig ég er alveg á síðustu bensíndropunum! Ég verð bara að skreppa í viku til spánar með Ester Ósk ef sólin kemur ekki ! Er einhver geim??? Kannski ég ætti bara að fara til Íbba, en Black woman a.k.a Guðrún Hildur er hjá henni núna á MARY J.BLIGDE tónleikum!!! Shit hvað það er mikill draumur að rætast hjá Guðrúnu!!! Það á alveg pottþétt eftir að líða yfir hana þegar MARY mætir á svæðið!

Shit hvað ég hlakka samt til að fá stelpurnar mínar heim úr útlöndunum og fara í saumó með þeim öllum:) Það verður ógeðslega gaman!!!! :) :)

Annars ætla ég að láta þetta duga í bili, Ester Ósk er að kalla á mig!

Bæjó!!! Ykkar Hildur :)


Posted at 11:44 pm by manchester
Comments (5)  

Tuesday, May 30, 2006
kominn tími á nýjan pistil ?? JÁ!!!

Jæja það er svo sannarlega komin tími á nýjan pistil! :) Við konungshjónin erum ekki búin að vera að standa okkur í bloggheiminum og erum búin að fá miklar og margar kvartanir yfir að það vanti fréttir af okkur :) Þannig núna ætlum við hér með að endurvekja þetta blogg okkar til að leyfa ykkur að fylgjast með okkur :) VVVEEEIIII ;)

 

Við erum s.s eins og allir vita búin að eignast litla prinsessu og VÁ hvað hún er mikill engill! :) Hún er rúmlega 7.vikna í dag og styttist í að hún verði 2.mánaða!!! Tíminn er ekkert smá fljótur að líða!!! Hún verður fermd áður en við vitum af ;) hehehe! Litla gullið okkar dafnar alveg rosalega vel og þið getið lesið betur um hana í vefdagbókinni hennar á barnalandi :)Síðan hennar er í link hérna til hliðar!

 

Það er s.s allt rosa gott að frétta af okkur :) Við erum bara á fullu að kynnast nýjasta fjölskyldumeðliminum og höfum því ekki haft mikinn tíma fyrir annað :) En það er svona að komst smá regla á hlutina núna, enda er sú stutta alveg búin að venjast því að sofa úti í vagni og svona :) Ég er einmitt að fara að byrja að læra á morgnanna enda er ég að fara í fjögur próf í ágúst þannig það má ekkert slaka á í þeim efnum! Á meðan að ég læri á sú stutta að lúlla útí vagni á meðan! Það er planið :) Annars verðum við bara að dúlla okkur saman í sumar mæðgurnar og hlökkum þvílíkt til! :) Gulli verður að vinna níðrí Fagralundi, þannig það verður stutt fyrir okkur að labba í flotta vagninum niðrí lund í hádegismat til pabba og svona :) Svo fara líka amma og afi í Förgó í sumarfrí og við ætlum líka að vera duglegar að labba til þeirra og spjalla við þau, vonandi í sólinni!!!Svo fara Hanna og Ingvar líka í eitthvað smá frí og þá geta þau kannski líka pínu leikið við okkur :) Annars ætlum við líka bara að heimsækja allar stelpurnar í vinnuna. Þær eru hvort eð er margar að vinna úti að stjórna unglingavinnuhópum og við ættum því auðveldlega að geta labbað til þeirra í spjall :)

 

Svo er sko farið að styttast í Thelmu Dögg, Írisi Hrund, Herdísi og Siggu liggu :) En Sigga ætlar reyndar að beila strax til Eskifjarðar og við puffum bara á það ;) En Siggi tiggi hefur aldrei séð Ester Ósk og hlakkar örugglega mikið til ;) Beta og Dagmar eru aftur á móti komnar og við fögnum því :) Það verður algjör snilld þegar allar eru komnar og við getum haldið almennilegan klúbb og spjallað!! Get ekki beðið !!!! :)

 

Fótboltinn er líka byrjaður á fullu hjá Gulla og vá hvað er gaman að skella sér á völlinn aftur!! Sérstaklega þegar það er gott veður :) Við konur leikmanna í HK erum einmitt búnar að stofna konuklúbb þar sem við hittumst alltaf flestar heima hjá einni fyrir leiki og förum svo saman að horfa á kallana okkar ! :) Ester Ósk fór einmitt á fyrsta leikinn sinn með mér á fimmtudaginn síðasta :) Var algjör engill og svaf allan tíman í vagninum sínum!

Svo er sko búið að vera nóg um að vera hjá okkur hjónum síðustu daga! Við fórum í útskriftarveislu til Hjördísar Perlu á föstudaginn, og svo líka til Hilmars og Evu á sunnudaginn, svo var hittingur heima hjá okkur síðasta laugardag þar sem Beta J, Beta G, Hjördís, Hanna og Ingvar komu að grilla og spila og svona :) Það var sko þvílíkt gaman og eitthvað sem við verðum að vera dugleg að gera í sumar!

 

En hvað haldið þið að Signý María sé að gera!!! Litla skvísan er bara að spóka sig um á Spáni í sólinni og er þvílíkt að fíla síg!! Dregur alla með sér út í sundlaug eldsnemma á morgnanna og er þvílíkt að fíla það að leika sér allan daginn í sólinni ! :) Hún er svo mikill snillingur !!! :)

 

En ég held að þetta sé bara komið nóg í bili! Ég ætla svo að skrifa fljótt aftur og halda þessar síðu á lífi :) Tékkið svo líka á barnalandinu en þar setjum við myndir og pistla reglulega :)

 

kv.Hildur MAMMA!!!!!


Posted at 01:28 am by manchester
Comments (4)  

Saturday, April 08, 2006
HÚN ER KOMIN!!!!!!!!!!!!!!:):):):)

Ég efast um að hamingjusamara fólk sé til á jörðinni þessa stundina:)

Ég og Hildur eignuðumst stórkostlega stelpu kl.1.50 7.apríl:):):):)

Hún var 51cm og tæplega 15.merkur!!!

Hún er SVO falleg:):):)

kv.Stóra Konungsfjölskyldan Gulli,Hildur,Signý og ????...;)

 

p.s.Það koma fullt af myndum inná barnaland á morgun :)


Posted at 11:24 pm by manchester
Comments (14)  

Next Page